Ekkert mikid búid ad gerast hérna hjá mér undanfarnar vikur.
Ég fór til Rawson, Trelew og Puerto Madryn Fyrir 3 vikum eda
svo.
Ferdalagid tók um 7 tíma í ríkisbíl fodur míns med ollum.
Komst ad thví ad thad er ekkert sérlega létt ad vera med tvo
brjálada litla braedur vid hlid sér í svona langan tíma. Jújú their
eru nú braedur mínir og ég elska thá sem braedur og allt thad en
their geta thó ordid frekar pirrandi stundum. Their eru
bandbrjáladir en jaeja thetta var fínt samt. Á leidinni thangar var
ekkert. Thetta er svona hálfgerd eydimork tharna á milli, eitthver
indjánathorp thó en ekki mikid.
En jaeja loksins komum vid til Rawson og í íbúdina sem ad thau
eiga tharna og thad fyrsta sem ad thau gerdu var eins og allir
venjulegir argentínubúar, thau fóru ad horfa á leikinn á milli
argentínu og.....man ekki hvada lid var tharna enda horfdi ég ekki
á hann.
Rawson er frekar daudur stadur, thad var nánast enginn tharna
thegar ad ég skrapp út á roltid, nema fólkid sem var ad hlaupa heim
til sín til ad horfa á leikinn. Jaeja en eftir smá rolt í kringum
baeinn skrepp ég svo heim og fae mér eitthvad ad éta. Var allt
frekar rólegt eftir thad nema um kvoldid skruppum vid til Trelew
sem er rétt fyrir utan. Thar fórum vid til aettingja fodur míns og
átum. Komst ad thví ad fjolskylda fodur míns er frekar dull. Ríkt
fólk sem ad gerir ekki rassgat allan daginn.
Daginn eftir fórum vid svo til Puerto madryn sem er ad um 1
klst. fyrir utan. Vid fórum ekki thangad til ad skoda eitthvad
túristadót.....vid fórum til ad horfa á risastóran rugby leik á
milli argentínu og wales eda eitthvad thvíumlíkt. Nema hvad ég
slepti theim leik, týndi fjolskyldunni og skrapp nidrá strond
tharna. Var helvíti heppinn med vedur tharna thannig ad thad var
alveg fínt. Fékk mér einn corona med sítrónu tharna nidri á strond.
Gaeti ekki ímyndad mér betri ferd á storndina.
Eftir thad fórum vid svo oll aftur til Trelew og hittum fleiri
dull aettingja til ad éta.
trelew er ekkert skemmtilegra reyndar, Stór borg med fullt af
íbúdarhúsum.
daginn eftir skruppum vid svo nidur á strond í Rawson og kíktum
á lífid thar....sem var ekkert. Voru reyndar hofrungar tharna nidri
vid stornd og nokkrir selir. En jaeja keyptum okkur eitthvad ad éta
og settumst nidur á strondina, Eftir thad skruppum vid svo nidur í
midbae og fadir minn tók mig til fylkisstjórann og á thingid sem ad
hann situr á tharna. Thar hitti ég svo flokkinn sem ad hann
stjórnar tharna og svo framvegis.
Eftir thad fór ég, módir mín og braedur mínir heim med rútu sem
ad tók um 8 klst.
Ekki mikid ad gerast í thessari fer en hún var alveg ágaet.
Á fostudaginn var svo kvedjupartí fyrir nokkra vini mína
sem ad voru ad fara aftur til sinna heimalanda. Frekar stórt, frítt
áfengi og matur. Hef ekki mikid ad segja frá thví partíi, man
ekkert sérlega mikid eftir thví nema ad ég rotadi naestum vinkonu
mína thegar ad ég skellti óvart hurd á hana og hún kastadist
aftur....tolum ekki mikid um thad meir.
Á laugardaginn var allt vittlaust hérna thegar ad argentína vann
mexico í fótbolta. Midbaerinn fylltist eins og skot af
fótboltabullum oskrandi og dansandi med argentíska fánan. Mjog
skemmtilegt ad hrofa á thetta fólk.
Hefdi víst betur getad haldid mér frá thessum stad thar sem ad
sjónvarpid kom til ad tala vid okkur skiptinemana og ekki nóg med
thad heldur kom útvarpid líka. Ekkert sérlega skemmtileg frétt ad
mínu mati en hver veit.
Jaeja sunnudagurinn sídasti var thó ágaetur. Skídasvaedid var ad
opna hérna. Ég leigdi mér eitt stykki skídabúnad og fór uppí fjoll.
Komst ad thví ad ég tharf miiikla aefingu á skídi. Eyddi ollum
deginum tharna eins og versti túristi ad reyna ad beygja í
barnabrekkunni. Í lok dagsins fór ég svo nidur verstu brekku
sem ad ég gaeti ímyndad mér. Risastór brott brekka med steinum hér
og thar út af thví ad thad vantadi meiri snjó. Rotadi naestum thví
sjálfan mig thegar ad ég datt af skídunum og rúlladi nidur brekkuna
og munadi minnstu ad ég hefdi dottid á eitt stykki stein.
Jaeja ég reyndi aftur, gat loksins beygt eitthvad smá en eftir
thad datt ég enn lengra nidru brekkuna.
Naest aetla ég ad halda mér í barnabrekkunni.
En já nóg í bili.
Ps.
Er ad vinna í myndunum, koma brádlega eftir ad bródir minn býr
til eitthvad pláss fyrir mig.